Dagbók Sonju & Gests

Dagbók Sonju & Gests

Blog@Palsson.dk

Nýr fítus á @Palsson.dk
"Ólíkt er þitt blogg mínu bloggi... !"

humm...

2010Posted by Gestur Pálsson Monday, May 24 2010 21:27:56
Er virkilega liðið heilt ár frá síðasta bloggi? Það er svona þegar að nýjir miðlar eins og Facebook taka yfirhhöndina.


Af okkur hjónakornunum er hins vegar allt gott að frétta. Hvítasunnuhelgin liðin, þar sem við notuðum meðal annars tíma til þess að sinna garðinum. Mörg af þeim blómum og trjám sem við plöntuðum síðasta sumar, eru að koma upp aftur, ásamt vel af arfa sem þurfti að fjarlægja. Hekkið var klippt og grasið slegið og borið á það.


Um páskana fórum við í 2 vikna ferð til Egyptalands í sól og sumar og höfum við nú sett inn myndir af þeirri ferð á síðuna okkar. Við nutum ferðarinnar í botn, gerðum ekkert fyrstu vikuna annað en að slaka á við sundlaugarbakkann og lesa bækur. Seinni vikuna vorum við aðeins aktivari! Fórum í 2 siglingar til þess að njóta þess besta sem Rauðahafið biður uppá. Syntum með höfrungum og snorkluðum í hafinu. Við fórum einnig í eyðimerkur safari, þar sem okkur var sýnt hvernig beduinar búar og lifa í eyðimörkinni, fórum á úlfaldabak og keyrðum um á fjörhjólum. Síðast en ekki síst var ferðinni heitið til Luxor, sem var áður höfuðborg Egyptalands, þar sem við skoðuðum dal konunganna og Karnak hofið.


Kíkið endilega á myndirnar!


Framundan er svo heimsókn foreldra okkar, þar sem þau munu leysa út jólagjöfina sína. En við ætlum að fara saman að sjá Carmen í Óperunni og gista á mjög skemmtilegu hóteli í Kaupmannahöfn. Hlökkum mikið til að fá þau í heimsókn :o)


Kær kveðja,

Sonja & Gestur

  • Comments(2)http://dagbok.palsson.dk/#post47

Blómin

2009Posted by Gestur Pálsson Tuesday, July 07 2009 23:09:59

Jæja þá er búið að fjárfesta í blómum fyrir heilan helling og planta við pallinn í krukkur og beð. Læt myndirnar tala sínu máli, en þetta fer alveg að klarast hjá okkur.

kvedja Sonja

  • Comments(0)http://dagbok.palsson.dk/#post46

Garðhúsgögn og bálstæði

2009Posted by Gestur Pálsson Monday, June 15 2009 17:58:15

Jæja gott fólk, laugardagurinn var notaður vel frá morgni til kvölds...aðallega af þeim Gesti og Kennth, þar sem mín var búin að vera veik og ekki alveg með kraftana til að kaupa blóm, planta og reita arfa. Hins vegar gat ég notið þess að sitja á pallinum um kvöldið, og grilla brauð við bálstæðið.

Myndirnar eru í öfugri tímaröð...svo þið getið byrjað neðst að skoða :o)

Hvernig líst ykkur svo á?

kv

Sonja

  • Comments(2)http://dagbok.palsson.dk/#post45

Brúðkaup 6/6

2009Posted by Gestur Pálsson Thursday, June 11 2009 12:40:10

Um síðustu helgi var okkur boðið í brúðkaup Therkels og Trine vina okkar, en þau búa í Silkiborg. Therkel og Gestur kynntust i gegnum vinnuna, og því miður eru þau hjónin sest að á Jótlandi svo maður skreppur ekki eins auðveldlega í kaffi til þeirra í dag.

Brúðkaupið var ákaflega fallegt, lítil steinkirkja frá 1776, athöfnin einföld þar sem gestir syngja brúðkaupssmálmana. Það er reyndar yfirleitt svoleiðis i Danmörku, og ekki algengt að ráða tónlistarfólk í kirkjuna.

Að afhöfn lokinni var boðið til veislu á krá í nágrenninu, og þar var dansað og tjúttað fram á nótt.

Reyndar verður að segjast að það sem daninn kann betur en við Íslendingar er að bjóða upp á nat mad. Um kl 2 að nóttu voru borin fram föt með rúgbrauði og alls kyns áleggi, gos og bjór. Kærkomið eftir mikinn dans um kvöldið.

Annars er rigning og leiðindaveður núna í DK..en helgin á víst að bjóða upp á eitthvað betra. Vonandi að það rætist, því lokahöndin verður lögð á pallinn. Búið er að fjárfesta í krukkum á pallinn, svo mín þarf að fara að kaupa sumarblóm, og svo er búið að fjárfesta í stóru borði og 8 stólum takk fyrir!

Jæja svo ég segi bara góða helgi!

kær kveðja

Sonja

  • Comments(0)http://dagbok.palsson.dk/#post44

Pallasmídi um Hvítasunnu

2009Posted by Gestur Pálsson Wednesday, June 03 2009 17:35:43

Loksins erum við búin að drífa í pallasmíði í garðinn. Ætluðum að smiða pall í fyrra, en það varð aldrei úr því. Mín hefur því skoðað bækur og blöð í vetur og spegulerað yfir hvernig pallurinn eigi nú að líta út, trépallur, hellulagður, einni hæð, eða tveimur...

Ofaná varð að smíða pall sem er samsettur úr 2 kössum, í sitthvorri hæðinni. Í öðru horninu sem skapast ætlum við svo ad setja granitsteina og útbúa bálpláss, svo maður geti setið úti við eldinn á heitum sumarkvöldum.

Vinnan gekk rosalega vel og á tveimur dögum náðu þeir Gestu og Kenneth granni okkar bara ansi langt með smíðina, þrátt fyrir að bjórarnir hafi runnið auðveldlega niður í hitanum smiley

Ég var annars að klára próf mitt í sjúkdómafræði í gær 2/6, en það er hluti af þessu LIF prófi sem ég verð að taka í tengslum við vinnuna. Búið að vera mikið að gera í vinnu og svo lestur ofan á. En nú er þessu lokið, og mikil tilhlökkun að geta sinnt garðinum og komið honum í súper stand fyrir næstu helgar.

Allir velkomnir í garðinn í sumar!

kær kveðja

Sonja

  • Comments(1)http://dagbok.palsson.dk/#post43

Vorvinna og fyrsta grillid 2009

2009Posted by Gestur Pálsson Tuesday, May 05 2009 14:29:43

Sælt sé fólkið,

Jæja það hefur ýmislegt gerst í Óðinsvéum núna á vormánuðum. Hæst ber Maraþon hlaup Gests í Hamborg 26.april sem drengurinn kláraði á flottum tíma: 3.17.30

Ég var því miður ekki með til þess að fagna þessum árangri þar sem mín var á hjartaráðstefnu í London vegna vinnunnar.

Hann er nú samt ekki viss um að hann endurtaki leikinn, en allavega búinn að prófa þetta. Fannst þetta mögnuð upplifun, en hann saknar fótboltans smiley

Annars hefur veðrið leikið við okkur í april mánuði. Met slegið í fjölda sólarstunda og hita. Sólin skein nánst í 9 klst á dag! Maður verður allt of góðu vanur! Allur gróður hefur tekið mikinn kipp og við erum búin að slá garðinn 3 sinnum það sem af er vori. Eplatréð skartar líka núna sínu fegursta með hvítum blómum.

Annars er á dagsskrá að byggja pall núna og síðast helgi var notuð til að hrinda því verkefni af stað. Búið að mæla upp fyrir palli, hluti af grasinu flutt, svo nú vantar bara að kaupa pallaefni.

Eftir góðan vinnudag á laugardaginn var, var slegið upp grilli með nágrannanum og fjöldskyldu hans, þar sem setið var fram á kvöld við eld og grillað "snúbrauð"

Um páskana fórum við hjúuin annars í smá ferðalag. Keyrðum til Silkiborgar að heimsæjka Terkel og Trine vini okkar. Kíktum upp á Himmelbjerget og svo það til Arhusa til Bigga og Telmu vini Gests. Gistum hjá þeim eina nótt og fengum herramanns móttökur.

Frá Arhusum sigldum vid yfir til Sjalands til Sjællands Odde, og keyrdum svo thadan til Kaumpannahafnar thar sem vid heimsóttum Lars og Maríu vini okkar og Ellu dóttir þeirra.

Þar fórum við á alveg frábæran stað Beach Club sem liggur á Holmen. Á sumrin ganga ferjubússarnir frá Nýhöfn og yfir á holmen þar sem Óperan liggur og svo tekur maður 2 stopp lengra að þessum stað. Þar var chillað í nokkra tíma og okkur fannst við komin á sólarströnd. Pálmatré og lounge tónlist.

Mæli með þessum stað ef þið eigið leið hjá Kaupmannahöfn og hafið nægan tíma í svona chill.

Þegar heim var komið úr þessu ferðalagi okkar beið páskaeggið eftir Gesti :o) Hann var alveg glaður og ánægður með að frúin hafi reddað Nóa eggi að heiman.

Jæja við segjum þetta gott í bili. Það eru myndir frá maraþon hlaupinu á www.palsson.dk og einnig frá Barcelona ferð okkar síðastliðið haust.

Kær kveðja,

Sonja

  • Comments(1)http://dagbok.palsson.dk/#post42

Annáll 2008

2008Posted by Gestur Pálsson Sunday, February 08 2009 21:30:34

Janúar
Það sem stendur upp úr í janúar mánuði er ferð Gests og Palla á Old Trafford að sjá Man.Utd. vs. Portsmouth. Þetta var í tilefni afmælis gamla, en mamma Gests var svo séð að setja þetta saman og redda drengjunum til Manchester.

Febrúar
Við munum ekki neitt smiley

Mars
Þetta er mánuður sem mun vera okkur minnistæður svo lengi sem við lifum. Það var í Mars 2008 þar sem við Sonja fórum í reisu til Tælands og nágranna eyja. 2 nætur í Bangkok og 11 nætur á eyjunni Koh Chang.

Apríl
Apríl mánuður var notaður til að hlaða upp batteríin og gera klárt fyrir næstu reisu. Hér var meðal annars farið í bústað með Önju og Sören, dönsku vinapari, við vesturströnd Jótlands. Það var mjög svo huggulegt og afslappandi.

Maí
Í fyrstu viku Maí mánaðar var haldið til Frakklands í brúðkaup þeirra Evu Dísar og Sam. Þetta var æðisleg ferð og frábært frí með góðum vinum. Þetta verður í minnum haft sem kampavínsbrúðkaup aldarinnar.

Áður en Maí mánuði lauk, skaust Gestur heim til að vera við útskriftarveislu litlu systur sinnar, stúdentaveislu, á meðan Sonja þurfti að dvelja við í Kaupmannarhöfn vegna kennslu fyrir LÍF próf.

Júní - Júlí (sumarfrí)
Júní mánuður er samansettur af tveimur eða kannski þremur minnistæðum atvikum. Sonja átti afmæli og var haldið upp á það með pompi og prakt. Við fengum fullt af fólki í heimsókn, sólin skein og við eyddum deginu út í garði við leik og drykk og seinna matur og meira það sem eftir lifði kvölds.

Mamma og tengdamamma tóku sig saman og skruppu í heimsókn til okkar stuttu seinna, skemmtileg hugmynd sem gjarnan má endurtaka. Æðislegt að fá þær í heimsókn.

Svo í lok júnímánaðar hófst sumarfrí okkar hjúa, en þá flugum við heim á Frón. Fríið byrjaði á æðislegu brúðkaupi þeirra Mæju og Binna við rjúkandi hveri og glaum. Það var haldið á Hótel Geysi og tókst einstaklega vel. Héðan fórum við á Flateyri að heimsækja Vilborgu og Rúnar sem leigt höfðu lítið hús. Það gerðu fleiri úr vinahópnum og enduðum við þar nokkur saman. Í tengslum við þessa ferð var svo ættarmót í föður-fjölskyldu Sonju, en eftir að hafa huggað okkur með vinum hélt ferð okkar rakleiðis á Bárðarströnd. Hér skal þó ekki gleyma, að í millitíðinni kíktum við í heimsókn til Ísafjarðar. Þar heimsóttum við ömmu og fengum þar pönnukökur og rjóma og kjötsúpu. Alveg magnað. Á sama tíma heimsóttum við Heiðar afa, sem byrgði okkur vel upp af harðfisk og verkuðum hákarli sem bæði var boðið uppá á ættarmótinu, sem og þegar til DK var komið aftur. Meira um það síðar.
Eftir ættarmót héldum við svo í Húsafell, við brakandi sól og ljúflegheit, en þar hittum við fjölskyldur okkar beggja og gerðum gott. Gestur spilaði sína fyrstu níu.

Ágúst
Við vorum ekki fyrr komin heim til DK, áður en leið okkar lá á Frón á ný. Nú skyldi gifta Vilborgu og Rúnar og ekki leiðinlegt það. Veislan var haldin í Viðey og var alveg klikkuð.

Ágúst mánuði lauk svo með ferð okkar til Svíþjóðar í bústað þeirra Jensen bræðra. Þetta er árlegur viðburður sem kallaður er "krabsegille". Hér er borðaður krabbi og drukkið snaps með. Hér ríkir einnig sú hefð að hver og einn sem ekki er danskur eða sænskur að upplagi, skal koma með matar- eða drykkjarkyns sem svarar til hefðar frá sínu eigin heimalandi. Hér kemur hákarlinn frá honum afa mínum aftur við sögu. Við Sonja buðum upp á íslenskt brennivín og hákarl. Margir fúlsuðu við, en aðrir átu með bestu lyst.

September
September mánuður endaði með ferð til Barselóna. Okkur var boðið á vegum C.C.Jensen, en tilefnið var ráðstefna sem haldin var í Zaragossa. Þar var CJC með bása og þurfti Gestur að dvelja þar í 2 daga. Við fengum svo helgi til að dóla okkur í Barselóna. Lovely.

Október
Það sem eftir lifði árs tengdist að mestu vinnu og hversdagsleika. Sonja fór meðal annars á ráðstefnu til London eina helgi í Október, en svo þarf eflaust ekki að minna fólk á bankahrunið á Íslandi. Þetta setti fólk í bás og fékk það til að hugsa sinn gang. Líka okkur.

Nóvember
Nóvember hafði því ekki margt í för með sér. Sonja föndraði soldið af jólakortum og Gestur átti afmæli án þess að mikilli veislu hafi verið skellt upp.

Desember
Desember mánuð hófum við á helgi í Kaupmannahöfn, þar sem við fórum á jólatónleika DR bigbands og kíktum á Lars og Maríu í kjölfarið. Því næst fengum við kærkomna heimsókn þegar Stefán bróðir Sonju og Ólöf kærasta hans kíktu á okkur, í tryggri fylgd bændakóngsins Tjörva Bjarnasonar. Þetta var hugguleg helgi þar sem við snæddum góðan mat og drukkum góð vín.

Desember hafði líka í för með sér helgi í Kaupmannahöfn, þar sem Astrazeneca bauð í brunch og leikhús. Þetta var haldið í Tívolí og sáum við Hnetubrjótinn í nútíma útgáfu. Mögnuð sýning.

Jólin byrjuðu svo hjá okkur þann nítjánda, en þá flugum við heim á Frón í jólafrí.

Kveðja
GP & SS

  • Comments(0)http://dagbok.palsson.dk/#post41

Okokok

2008Posted by Gestur Pálsson Monday, December 01 2008 23:25:45

Kæru vinir og vandamenn

"Góðir hlutir gerast hægt..." sagði einhver. Afsakanir eru ekki til og skýringar finnast ekki. Internet tengingin hjá okkur er mjög léleg, tölvurnar hafa verið að bila og við megum ekki blogga í vinnunni. smiley

Síðan síðast... með sumarfrí á Íslandi.. púff ýmislegt hefur jú gerst. En burst séð frá því að þá sitjum við í sófanum á mánudagskvöldi, eftir skemmtilega helgi. Munkebjergvej var vel skipaður með góðu fólki alla helgina, en þau komu í heimsókn Stefán Þór bróðir Sonju og Ólöf kærasta hans, ásamt fylgdarsveini; ritstjóra og andliti bændasamtakanna Tjörva Bjarnasyni. Þetta var skemmtilegur kokteill enda gott í þessu fólki og glatt yfir, þrátt fyrir óhagstætt gengi og kulda.

Blog Image

Sem fyrr að þá eru ekki teknar myndir hér hjá okkur nema við matarborðið og á því varð engin breyting í þetta skiptið. Þau komu öll til okkar á föstudeginum, en á meðan Sonja sótti Stefán og Ólöfu til Kaupmannahafnar, með viðkomu í Tívolí, gátu við Tjörvinn skipst á sögum og tekið stöðuna á Carlsens Kvarter.

Laugardagsmorgun þurftum við Sonja að tala hátt til þess að vekja fólkið, en klukkan var að ganga hádegi þegar fólk loksins rankaði við sér. Það er gott að vita að fólk finnur ró og getur sofið þegar það kemur í heimsókn smiley Við byrjuðum því daginn með frokost áður en við héldum áleiðis í bæjarrölt.

Blog Image

Í bænum upplifðum við nálægð jólanna... kannski í fyrsta skipti í ár, en við mikla athöfn á ráðhústorginu var kveikt á stóra jólatrénu við fögnuð mikinn fjölda fólks. Háttvirtur bæjarstóri og jólasveinninn honum til aðstoðar, sáu um verkið. Við gengum hér eftir í gegnum gamla bæinn og nörtuðum í brenndar möndlur á jólamarkaðinum í H.C. hverfinu og tókum hinni postulegu kveðju með myndum frá gamla tímanum.

Það var jú farið að rökkva þegar hér er komið við sögu og tími til kominn að halda heim á leið. Þar beið okkar laugardagskvöld að hætti hússins og fólk fór að taka á sig aðrar myndir.

Blog Image

Ólöf, glæsileg í nýjum fötum..

Blog Image

Stefán Þór hatar ekki sopann...

Blog Image

Meistarinn ávallt pollrólegur og yfirvegaður...

Blog Image

My one and only love...

Blog Image

...og svo bara síðusmiðurinn.

En allt fór þetta nú vel og allir voru hressir og kátir daginn eftir. En þeir vita það sem hér hafa verið... "what happens in Odense, stays in Odense"
Sonja gerði gott og bakaði eplaköku með rjóma og heitt súkkulaði. Bara gott smiley

Blog Image

Tjörvinn hélt svo áfram ferðum sínum um Norðurlöndin, og Svíjarnir biðu hans með blóm og lúðra.. en eitthvað átti víst að funda bæða mán og þri. Hann varð því miður af eplakökunni, en ég lofaði honum að geyma sneið fyrir hann og koma með til Íslands núna um jólin.

Stefán og Ólöf voru hjá okkur þar til í morgun, en héldu þá yfir til Sjöppen. Þau langaði til að rölta um stóru borgina áður en haldið var í flug, seinna um kvöldið.

Kærar þakkir fyrir heimsóknina öll sömul...

Kveðja
GP smiley

  • Comments(0)http://dagbok.palsson.dk/#post40
Next »